12.12.2013 21:15
Eigendur Bátasmiðjunnar Sólplasts í Sandgerði í jólafíling
Segja má að þau Kristján Nielsen og Sigurborg S. Andrésdóttir, eigendur Bátasmiðjunnar Sólplasts í Sandgerði fari í mikinn jólafíling ásamt fjölskyldu sinni, þegar dregur að jólum. Sem sé eru algjör jólabörn í sér. Í fyrra vöktu þau mikla athygli fyrir miklar jólaskreytingar að Hlíðargötu 37, í Sandgerði og ekki aðeins skeytingar því jólalög voru spiluð og ómuðu því utandyra yfir jólin. Var hús þeirra valið af bæjaryfirvöldum í Sandgerði, jólahúsið í Sandgerði 2012. Í ár endurtaka þau skreytingarnar og hafa bætt um betur, en nú eru jólalögin spiluðu á ákveðinni útvarpsrás, þar sem hlíða má á þau meðan horft er á glæsileikann.
Þó enn séu 12 dagar til jóla, ákvað ég að taka myndir af heimili þeirra á Hlíðargötunni á birtuskilunum á fjórða tímanum í dag. Hér sjáum við myndir teknar utandyra, en innandyra er ekki síður fallegt um að lítast og hver veit nema ég komi með myndir teknar innandyra einhvern tímann nú fyrir eða um jólahátíðina.










Hlíðarvegur 37, í Sandgerði, hjá þeim Kristjáni Nielsen og Sigurborgu S. Andrésdóttur ásamt fjölskyldu, í birtuskilunum í dag © myndir Emil Páll, 12. des. 2013
