11.11.2013 11:48

Öll aðstoð vegna Goðafoss afturkölluð

mbl.is:

Landhelgisgæslan hefur snúið varðskipinu Þór til hafnar og dregið úr viðbúnaði vegna brunans um borð í Goðafossi, skipverjar náðu tökum á ástandinu um borð í morgun og um tíuleytið var ósk um aðstoð afturkölluð. Goðafoss er væntanlegur í höfn eftir u.þ.b. tvo daga. 

Auðunn F. Kristinsson, verkefnisstjóri Aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir að af fyrstu lýsingum að dæma hafi eldurinn verið talsverður og ríflega 40 manns fóru af stað á vettvang í morgun. Báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar héldu á vettvang í morgun ásamt varðskipinu Þór og flugvél gæslunnar sveimaði yfir vettvangi í morgun.

Sif,  flugvél Landhelgisgæslunnar, er á leið til Reykjavíkur og eins eru þyrlurnar á leið til Reykjavíkur. Færeyska varðskipinu Brimil hefur verið snúið aftur til Færeyja.

Samhæfingarstöð  í Skógarhlíð var virkjuð meðan aðgerðir stóðu sem hæst en skipið var staðsett í íslenskri björgunarlögsögu. Einnig var  Landhelgisgæslan í sambandi við björgunarmiðstöðina í Færeyjum og björgunarmiðstöðina á N-Bretlandi vegna málsins  

Goðafoss er á leið til landsins frá Evrópu, skipið hafði viðkomu í Færeyjum en fór þaðan klukkan níu í gærmorgun. Skipið er hlaðið hefðbundnum farmi.