07.07.2013 07:23

Erlingur SF 65 og Þórir SF 177 - fóru í pottinn nú um helgina

Samkvæmt fregnum af síðu Krúsa eru þessi tveir bátar sennilega nú komnir til Belgíu, á leið sinni í pottinn illræmda. Því samkvæmt fréttum af umræddri síðu voru þeir í Norðursjó í gær.


                                                              91. Þórir SF 177


                                                        1379. Erlingur SF 65


               1379. Erlingur SF 65 og 91. Þórir SF 177, við bryggju í Höfn, Hornafirði, en þar hafa þeir nú legið all lengi  © myndir Hilmar Bragason

 

AF Facebook:

Guðni Ölversson Emil. Hvaða bátur er þessi Þórir upphaflega? Veistu nokkuð hvar Garðabæja- Þórir er niðurkominn núna.
Emil Páll Jónsson Þessi var lengst með nafnið Helga RE 49, en hét áður Haförn GK - Garðabæjar Þórir, en núna Steinunn AK 36 frá Akranesi og eftir að hafa legið þar við bryggju í nokkur ár fór hann í útgerð nú í sumar.
Guðni Ölversson Þórir GK var magnaður bátur og lengst af eins og nýbónuð mubla þegar hann var í Grindavík og á Hornafirði.