06.06.2013 09:59
Hrappur í Kerlingafirði og stýrishús við flugvöllinn í Kollafirði
Þorgrímur Ómar Tavsen tók þessar skyndi myndir núna áðan og sendi mér og kemur fram undir þeim hvað er um að ræða

Við flugvöllinn í Kollafirði í Barðarstrandarsýslu er þetta stýrishús og vegskilti sem sýnir ýmsar vegalengdir

Stýrishúsið við flugvöllinn í Kollafirði í Barðarstrandarsýslu

7471. Hrappur, í Kerlingafirði í Barðarstrandarsýslu
© myndir Þorgrímur Ómar Tavsen, 6. júní 2013
AF FACEBOOK:
Sigurbrandur Jakobsson Stýrishúsið við flugvöllinn á Eyri (Sveunungseyri) er af Smára BA 232 (866) einn eiganda Eyrar er Harald Snæhólm fyrrverandi flugstjóri og þegar hann keypti jörðina var hans fyrsta verk að gera flugvöll þarna. Húsið og vegvísirinn komu upp kringum 1990 en hann o.fl. kaupa 1985-6. Eyri í Kollafirði er best þekkt núna sem ættaróðal Jóns Gnarr en afi hans var bóndi á Eyri og faðir hans var uppalin þar. Sjálfur er ég frá næsta bæ utan við Eyri Galtará
Skrifað af Emil Páli
