04.04.2013 11:20
Ásberg RE 22, drekkhlaðið í Reykjavíkurhöfn
![]() |
1041. Ásberg RE 22, með fullfermi við löndunarbryggju á Granda í Reykjavík © mynd Emil Páll |
Ásberg RE 22 er smíðað í Deest, Hollandi árið 1967 bar þetta nafn þau 10 ár sem það var á skrá hér á landi en það var selt til Noregs árið 1977 sem hluti af kaupverði togarans 1509 Ásbjörns RE 50 en áður hafði systurskip Ásbergs, 1026. Ásgeir RE 60 farið upp í systurskip Ásbjörns, 1505 Ásgeir RE 60. Um Ásbergið er það að segja að það endaði sennilega í Chile og er þar sennilegast ennþá
AF Facebook:
Skrifað af Emil Páli

