12.12.2012 08:43

Ásgeir Jónasson EA 516 - verður Ólafur HF 200

Samkvæmt vef Fiskistofu hefur báturinn Ásgeir Jónasson EA 516, verið skráður sem Ólafur HF 200 og kemur því í stað þess báts sem bar það sama nafn og seldur hefur verið til Sandgerðis þar sem hann mun fá nafnið Pálína Ágústsdóttir GK 1, hann er þó skráður enn hjá Fiskistofu sem Ólafur HF - ÍS 200, sem bendir til þess að hugsanlega fái Pálína Ágústsdóttir sem seld var til Bolungarvíkur númerið ÍS 200, en allt á það eftir að koma í ljós.


                 2483. Ásgeir Jónasson EA 516, sem fá mun nafnið Ólafur HF 200, í Hafnafjarðarhöfn © mynd Sigurður Bergþórsson, 8. des. 2012