24.10.2012 08:49
Fallstykkið gert klárt
Af vef Faxaflóahafna í gær:
Fallbyssan hreinsuð
Fallbyssan hreinsuð
Dátarnir á Triton, danska varðskipinu sem liggur við Miðbakkann í Reykjavíkurhöfn, sinntu skyldustörfum í morgunsárið þegar þeir þjónustuðu fallbyssuna.
Einhverjum datt í hug að Danir væru ekki alls kostar sáttir við það hringl sem fram hefur farið í kringum "dönsku stjórnarskrána" sem fengin var að láni 1944 og væru því að brýna kutana.
Enn aðrir héldu því fram að áflog þeirra Obama og Romney um utanríkismál væri ástæðan fyrir því að fallstykkið á Triton er tekið í gegn.
Skrifað af Emil Páli
