09.09.2012 09:15
Sjaldgæf sjón: Baldvin Njálsson GK 400, nánast í heimahöfn
Það er ekki algeng sjón að sjá Suðurnesjatogarann Baldvin Njálsson GK 400, frá Garði, í höfn á Suðurnesjum, þar sem hann notar Hafnarfjarðarhöfn sem sína útgerðarhöfn. Í morgun varð þó á undantekning er togarinn hafði nokkra mínútna viðdvöl í Helguvík, en nær getur hann ekki komist sinni heimahöfn, því varla kemur hann að bryggjunni í Garði. Sem kunnugt er þá er Helguvík á mörkum Keflavíkur og Gerðahrepps. Tók ég þessa syrpu af honum við þetta tækifæri.

2182. Baldvin Njálsson GK 400, á Stakksfirði og gerir sig kláran til að sigla að Helguvík

2182. Baldvin Njálsson GK 400, siglir inn í Helguvík

2182. Baldvin Njálsson GK 400, í Helguvík klukkan rúmlega 8 í morgun © myndir Emil Páll, 9. sept. 2012

Skrifað af Emil Páli