Áhugamenn
um stjörnufræði hafa fjölmennt í kvöld til fylgjast með einum
sjaldgæfasta viðburði í okkar sólkerfi, svokallaðri þvergöngu Venusar.
Gangan hófst kl. 22:04 og lýkur kl. 4:54 í fyrramálið. Á
stjörnufræðivefnum kemur fram að Reykjavík sé eina borgin í heiminum þar
sem sólin sest og rís aftur á meðan þessi viðburður stendur yfir. Þetta
sást einnig vel í Keflavík og vonlaust var að horfa á sólina, hún hefur
aldrei verið svona björt fyrr, enda segir á vefnum að nú er lag að
grípa tækifærið því 235 ár eru þangað til að þessi sjaldgæfi atburður
sést aftur, frá upphafi til enda, frá Íslandi," segir á vefnum.Þar segir
að þverganga nefnist það þegar reikistjarna gangi þvert fyrir sólina
frá jörðu séð. "Slíkir atburðir eru frekar sjaldgæfir en þannig gengur
Venus fyrir sólina á 105,5 eða 121,5 ára fresti og þá tvisvar með átta
ára millibili. Seinast gekk Venus fyrir sólu árið 2004 og sást sú
þverganga vel frá Íslandi," segir á stjörnufræðivefnum. Lét þó vera að
smella mynd fyrr en sólin var komin bak við ský og þetta var árangurinn
þá og birti tvær myndir sem ég tók núna á miðnætti.