Varðskipið Týr er lítið við við Íslandsstrendur um þessar mundir. Júlíus Sigurjónsson Varðskipið Týr mun sinna dráttskipaverkefnum utan Íslandsstranda næsta mánuðinn.  Samkvæmt upplýsingum frá Ásgrími Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, fela verkefnin í sér að draga skip frá Nova Scotia yfir til Danmerkur í brotajárn og í framhaldinu að sækja annað skip í Kílaskurðinn og draga það á sama stað í Danmörku. "Miðað er við að Týr leggi af stað upp úr miðri næstu viku og þá verður hann kominn aftur í kringum 10 júní. Miðað við að allt gangi eðlilega verður þetta því um mánaðar fjarvera, mögulega 5 vikur," segir Ásgrímur. Að hans sögn hefur Týr ekki verið við gæslu á Íslandi síðan hann kom heim úr nýlegum verkefnum erlendis. "Týr var um tveggja mánaða tímabil í vetur við eftirlit fyrir Evrópubandalagið á Flæmska hattinum og hefur ekki sinnt öðrum verkefnum síðan." Önnur varðskip sinna hlutverk Týs hérlendis í hans fjarveru. "Við höfum haft Ægi í eftirliti og gæslu við Íslandsstrendur og nú er Þór kominn. Ætlunin er að gera Þór út í allt ár hér við Ísland," segir Ásgrímur. "Í augnablikinu gerum við bara eitt skip út við Ísland í hvert skipti. Staðan er einfaldlega þannig núna." Aðspurður hvort það nægi til að sinna verkefnum segir Ásgrímur: "Það eru ekki mín orð.""/>

05.05.2012 22:14

Varðskipið Týr í erlend verkefni

mbl.is:

Varðskipið Týr er lítið við við Íslandsstrendur um þessar mundir. stækka Varðskipið Týr er lítið við við Íslandsstrendur um þessar mundir. Júlíus Sigurjónsson

Varðskipið Týr mun sinna dráttskipaverkefnum utan Íslandsstranda næsta mánuðinn.  Samkvæmt upplýsingum frá Ásgrími Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, fela verkefnin í sér að draga skip frá Nova Scotia yfir til Danmerkur í brotajárn og í framhaldinu að sækja annað skip í Kílaskurðinn og draga það á sama stað í Danmörku.

"Miðað er við að Týr leggi af stað upp úr miðri næstu viku og þá verður hann kominn aftur í kringum 10 júní. Miðað við að allt gangi eðlilega verður þetta því um mánaðar fjarvera, mögulega 5 vikur," segir Ásgrímur. Að hans sögn hefur Týr ekki verið við gæslu á Íslandi síðan hann kom heim úr nýlegum verkefnum erlendis. "Týr var um tveggja mánaða tímabil í vetur við eftirlit fyrir Evrópubandalagið á Flæmska hattinum og hefur ekki sinnt öðrum verkefnum síðan."

Önnur varðskip sinna hlutverk Týs hérlendis í hans fjarveru. "Við höfum haft Ægi í eftirliti og gæslu við Íslandsstrendur og nú er Þór kominn. Ætlunin er að gera Þór út í allt ár hér við Ísland," segir Ásgrímur. "Í augnablikinu gerum við bara eitt skip út við Ísland í hvert skipti. Staðan er einfaldlega þannig núna." Aðspurður hvort það nægi til að sinna verkefnum segir Ásgrímur: "Það eru ekki mín orð."