Varðskipið Þór koma með dýpkunarpramman Hrapp til Hafnafjarðar í kvöld. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson Varðskipið Þór kom til Hafnarfjarðar í kvöld en hann hefur verið í viðgerð í Noregi síðan í febrúar. Þór dró til landsins pramma sem notaður verður í vegagerð á Vestfjörðum í sumar. Suðurverk tók prammann á leigu og fékk Þór til að draga hann til landsins, fyrst skipið var á leið til Íslands. Hann verður notaður við að leggja Vestfjarðaveg á milli Eiðis og Þverár. Skipta þurfti um aðra af aðalvél í Þór vegna þess að óeðlilegur titringur var í henni. Allur kostnaður við þetta verkefni er greiddur af Rolls Royce. "/>

05.05.2012 00:07

Þór kominn heim - dró Hrapp með sér yfir hafið

Mbl.is

Varðskipið Þór koma með dýpkunarpramman Hrapp til Hafnafjarðar í kvöld. stækka Varðskipið Þór koma með dýpkunarpramman Hrapp til Hafnafjarðar í kvöld. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson

Varðskipið Þór kom til Hafnarfjarðar í kvöld en hann hefur verið í viðgerð í Noregi síðan í febrúar. Þór dró til landsins pramma sem notaður verður í vegagerð á Vestfjörðum í sumar.

Suðurverk tók prammann á leigu og fékk Þór til að draga hann til landsins, fyrst skipið var á leið til Íslands. Hann verður notaður við að leggja Vestfjarðaveg á milli Eiðis og Þverár.

Skipta þurfti um aðra af aðalvél í Þór vegna þess að óeðlilegur titringur var í henni. Allur kostnaður við þetta verkefni er greiddur af Rolls Royce.