03.03.2012 21:00
Þegar Baldur fór landleiðis
Ég hef áður birt syrpu frá því þegar Baldur KE var fluttur landleiðis frá Keflavíkurhöfn og á þann stað sem hann stendur núna við Grófina. Endurbirti ég því aðeins tvær myndanna auk myndar af mönnum sem fylgdist með
311. Baldur KE 97, fluttur 2003 frá Keflavíkurhöfn og út í Gróf
Þrír ættliðir, auk hafnarstjóra fylgdust með þegar báturinn var hífður upp úr sjónum. F.v. Ólafur Björnsson fv. útgerðarmaður og skipstjóri, Pétur Jóhannsson hafnarstjóri, Garðar Vilhjálmsson barnabarn Ólafs og sá hinn sami og vill nú breyta Perlunni í Reykjavík í heilsuhótel og Borgar Ólafsson sonur Ólafs © myndir Emil Páll, 2003
