19.12.2011 00:07
Lítill árangur að loðnuleit
Fiskiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til hafnar á Akureyri síðdegis í dag eftir stuttan túr í loðnuleit. Lítið varð vart við loðnu og það sem sást stóð fremur djúpt og því illa viðráðanlegt.
Fjögur skip eru enn á miðunum við leit að loðnu en stefna til hafnar. Það eru Jón Kjartansson SU, Beitir NK, Börkur NK og Erika GR sem veiðir kvóta Grænlendinga
