Norski dráttarbáturinn kemur með Ölmu til Akureyrar síðdegis í dag. mbl.is/Skapti Flutningaskipið Alma kom að athafnasvæði Slippsins á Akureyri nú síðdegis. Norskur dráttarbátur dró skipið frá Fáskrúðsferði og gekk ferðin vel. Alma verður tekin upp í þurrkví Slippsins þar sem gert verður við skemmdir og nýtt stýri sett í skipið. Alma missti stýrið í Hornafjarðarósi í byrjun nóvember og var dregin inn til Fáskrúðsfjarðar í vondu veðri. Í lok nóvember var lokið við að umskipa freðfiskfarmi úr flutningaskipinu yfir í systurskip þess, Green Lofoten. Unnið er að því að smíða nýtt stýri í flutningaskipið í Hollandi. Það verður líklega komið til landsins snemma í janúar."/>

18.12.2011 19:41

Alma komin til Akureyrar

mbl.is:

Norski dráttarbáturinn kemur með Ölmu til Akureyrar síðdegis í dag. stækka

Norski dráttarbáturinn kemur með Ölmu til Akureyrar síðdegis í dag. mbl.is/Skapti

Flutningaskipið Alma kom að athafnasvæði Slippsins á Akureyri nú síðdegis. Norskur dráttarbátur dró skipið frá Fáskrúðsferði og gekk ferðin vel. Alma verður tekin upp í þurrkví Slippsins þar sem gert verður við skemmdir og nýtt stýri sett í skipið.

Alma missti stýrið í Hornafjarðarósi í byrjun nóvember og var dregin inn til Fáskrúðsfjarðar í vondu veðri. Í lok nóvember var lokið við að umskipa freðfiskfarmi úr flutningaskipinu yfir í systurskip þess, Green Lofoten.

Unnið er að því að smíða nýtt stýri í flutningaskipið í Hollandi. Það verður líklega komið til landsins snemma í janúar.