18.12.2011 16:30

stýrispjald í gagnasamstæðunni okkar bilað

 Eftirfarandi orðsending var send út nú fyrir stuttu frá 123.is

 
Ágæti notandi,

Það er stýrispjald í gagnasamstæðunni okkar bilað. Það veldur víxláhrifum á kerfið - þannig að við getum ekki lesið frá samstæðunni.

Öll gögn eru í lagi, það þarf ekkert að óttast varðandi það. En við getum ekki keypt nýtt kort fyrr en verslanir opna á mánudag. Um leið og það gerist förum við og skiptum út bilaða hlutnum.

Afsökum ónæðið - þetta er auðvitað eitthvað sem við reynum að koma í veg fyrir en aukahlutir í tölvum bila eins og annað :(

Kær kveðja,

Stígur

Vefstjóri 123.is 


Þrátt fyrir þetta mun ég reyna eins og ég hef verið að gera í dag og birta ýmsan fróðleik sem ég næ í. Ekki verða þó neinar nýjar myndir birtar fyrr en allt er komið í lag.