12.12.2011 08:30
Elliði GK á síðasta degi
þessi mynd er stækkuð upp úr mynd úr syrpunni af sjósetningu Selmu ÍS, sem sýnd var hér fyrir nokkrum nóttum og sýnir Ellliða GK á sínum síðasta degi í Njarðvík því síðar þennan dag var hann dreginn í Hafnarfjörð þar sem hann var brotinn niður. Ef vel er skoðað má sjá að Kristbjörgin sem síðan fór í plássið er þarna utan á Elliða.
43. Elliði GK 445 og utan á honum er 44. Kristbjörg VE 70, í Njarðvíkurhöfn © Emil Páll, 26. maí 1991
Skrifað af Emil Páli
