20.11.2011 00:00
Mar GK 21 sökk við Staðarberg
Trilla sökk vestan við Grindavík
Björgunarsveitin Þorbjörn frá Grindavík og Björgunarsveitin Suðurnes voru kallaðar út rétt um klukkan 10:30. Nærstaddur bátur kom fyrstur að og tók skipverjann um borð og kom taug á milli. Var þá báturinn við það að sökkva. Þegar björgunarskipið Oddur V. Gíslason kom á staðinn var einungis stefni bátsins uppúr og ætlar áhöfn Odds að freista þess að koma honum til hafnar í Grindavík. Slöngubátar frá björgunarsveitinni Þorbirni eru við hreinsunarstörf á sjó og hirða upp það sem hefur flotið upp úr sokknu trillunni.
Skipbrotsmaðurinn er nú um borð í Oddi V. Gíslasyni og er hann heill á húfi. Gert er ráð fyrir að siglingin til Grindavíkur taki um fjórar klukkustundir. Svartaþoka er á svæðinu og er skyggni aðeins nokkrir metrar.
Þann 19. maí 2010 var Mar GK 21 á handfæraveiðum á SV miðum. Veður: S 3-4 m/sek. (Grindavík). Djúprista óþekkt.

Báturinn var á siglingu þegar vélin herti á sér eins og kúplað hefði verið frá henni. Við athugun kom í ljós að mikill leki var inn í vélarúmið en ekki reyndist mögulegt að staðsetja hann. Bátsverjinn setti dælur í gang en þær höfðu ekki undan lekanum.
Mar GK varð vélarvana og tók að reka til lands undir Stafabergi. Bátsverjinn þrýsti á neyðarhnapp á STK kerfinu (sjálfvirka tilkynningarskyldukerfið) og hringdi í Neyðarlínuna. Hann setti út akkeri en festin slitnaði.
Jói Brands GK kom fyrstur á staðinn og bjargaði skipverjanum en þá var báturinn að sökkva. Björgunarskipið Oddur V. Gíslason var sent á vettvang og þegar það kom til bátanna stóð aðeins stefnið upp úr á Mar GK. Hann tók flakið í tog til Grindavíkur þar sem það var híft á land.
Hér koma svo myndir þær sem Bragi Snær tók á vettvangi:
7050. Mar GK 21 © myndir Bragi Snær, 19. maí 2010
2743. Oddur V. Gíslason, á vettvangi © mynd Bragi Snær, 19. maí 2010
