10.10.2011 23:30

Freyr SU 26 eða Papey SU 26

Um þennan bát veit ég ekkert, þar sem ég finn hann ekki í sjómannaalmanaki frá árunum fyrir 1950, en sýnist þó að þetta sé einn af þeim bátum sem smíðaðir voru á Fáskrúðsfirði á þessum árum. Einn þeirra bátur var t.d. Skrúður sem fórst síðan héðan að sunnan sem Andri KE 5. Þarf að skoða þennan betur.

Ábendingar hafa komið um að hann hafi í raun aldrei heitið Freyr þó það standi á honum, heldur Papey SU 26, sm. á Seyðisfirði 1947, fékk síðar nöfnin Vörður Re og Geysir BA. Rak upp í Kóp og ónýttist.


      Freyr SU 26 eða Papey SU 26 © mynd Magni Þórlindsson, einhvern tímann í kring um miðja síðustu öld