10.10.2011 21:35

Heimta Baldur til Eyja í vetur

visir.is:

"Framferði opinberra aðila í samgöngumálum okkar er til skammar," sagði skipuleggjandinn. Fréttablaðið/óskar p. Friðriksson


Þess var krafist á fjölmennum mótmælafundi á Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum í gær að Baldur yrði fenginn til að sigla milli lands og Eyja í vetur. Á fimmta hundrað manns voru saman komnir á bryggjunni.

"Það er algjörlega óásættanlegt að þjóðvegurinn sé lokaður að stórum hluta vegna mannlegra mistaka," sagði skipuleggjandinn Sigurmundur Gísli Einarsson um siglingaleiðina til og frá Landeyjahöfn.

Þá kröfðust mótmælendur þess að ráðherra samgöngumála og fulltrúar Vegagerðar og Siglingamálastofnunar myndu sitja fyrir svörum á opnum fundi í Eyjum.