07.07.2011 12:42

Aníta KE 399 og Birgir GK 263 í ufsanum

Í morgun smellti ég nokkrum myndum af löndun og/eða eftir löndun á tveimur bátum sem stunda ufsaveiðar frá Grindavík. Annar þeirra Aníta, sótti út á Banka, þar sem þeir vilja ekki smáufsan, heldur stærri fisk og voru þeir búnir að landa þegar ég kom á staðinn, en aflinn var frekar lítill. Hinn Birgir GK sækir styttra og kom með meiri ufsaafla, en hann var meðalstór og nánast niður í bryggjuufsa. Tók ég syrpur af bátum bátunum og birt hér fyrst þar sem tilheyrir Anítu og síðar það sem tilheyrir Birgi GK


       399. Aníta KE 399 og framan við hann sést í 2005. Birgi GK 263, í Grindavík í morgun


                              Bræðurnir Einar og Gísli (skipstjórinn) í morgun








             399. Aníta KE 399, færir sig innan hafnar í Grindavík, eftir löndun © myndir Emil Páll, 7. júlí 2011