06.06.2011 23:31
Fjörið á bryggjunni
Í framhaldi af myndasyrpum þeim sem Heiða Lára sendi mér um miðnætti sl og voru teknar í skemmtisiglingu á Grundarfirði, sendi mér núna myndir sem teknar voru þegar siglingunni lauk á laugardaginn. Þá tók við grill á bryggjunni og svo keppni milli áhafna og fyrirtækja. 4 lið kepptu og hér eru myndir frá því
Keppandi fyrir lið Brasa á leið upp kaðalinn til að kyssa bjórkassann
Ásgeir Ragnarsson í bjórteygjuhlaupi fyrir Ragnar og Ásgeir, vel kvattur áfram af dótturinn.
Gert klárt fyrir karatogið,
Keppendur frá Hring og Ragnari og Ásgeiri tilbúnir í flotgöllunum, til að stökkva út í og synda yfir, þar sem þeir eru hífðir upp karið sett á flot og tveir toga sig yfir í því.
Hringsmenn að koma sér í karið
Mönnum R og Á gekk eitthvað illa að hitta í karið
Enduðu svo bara á sundi ![]()

Farsælsmenn að setja karið út
Brasamenn á góðri siglingu.
Lið Brasa vann keppnina.
© myndir og texti, Heiða Lára 4. júní 2011
