06.06.2011 21:12

Maron og stór-höfuðborgarsvæðið

Það er ekki oft sem maður hefur slíkt skyggni eins og var í kvöld er ég tók þessa myndasyrpru. Ekki aðeins að Maron GK, sem var á leið á lúðuveiðar myndaðist vel, heldur má líka sjá byggðina í Hafnarfirði og inn eftir stór-höfuðborgarsvæðinu og síðan út fyrir það íog upp eftir Vesturlandsveginum. Helsta hjálpin var auðvitað sólin sem hjálpaði þarna vel til, en myndirnar tók ég í kvöld rétt fyrir kl. 21.






















       363. Maron GK 522 siglir út Stakksfjörðinn og í baksýn má sjá byggðina í Hafnafirði, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og jafnvel upp í Kjós © myndir Emil Páll, rétt fyrir kl. 21 í kvöld, 6. júní 2011