06.06.2011 16:05
Norðleivur heitir nú Dragasund

Norðleivur FD 659, smíðaður í Ósey ehf., Hafnarfirði, hefur nú verið seldur innan Færeyja og fengið nafnið Dragasund © mynd frá Skipini.fo
Báturinn Norðleivur, sem Kjartan Joensen í Leirvík, Færeyjum, lét byggja í Ósey ehf. Hafnarfirði 2002, var fyrir nokkru seldur seldur til Sørvágs og hefur nú fengið nafnið Dragasund.
Raunar var skrokkurinn fluttur inn til Hafnarfjarðar frá Skipasmíðastöðinni Crist í Gdansk í Póllandi og síðan lokið við smíðina í Ósey með smíðanúmeri 8 frá þeirri stöð. Var hann sjósettur í Hafnarfirði 19. apríl 2002 og afhentur eigendum mánudaginn 13. maí sama ár og þá strax um kvöldið sigldi hann áleiðist til Færeyja.
Skrifað af Emil Páli
