05.05.2011 22:34
Oddgeir kom með skútuhluta og persónulega muni til Grindavíkur í kvöld
Eins og sagt var frá hér á síðunni í morgun fékk áhöfnin á Oddgeiri EA 600 þriggja mastra kanadíska skútu í trollið á
Faxaflóa í gær. Skútan kom upp í heilu lagi en brotnaði svo og sökk
aftur. Hins vegar varð ýmsilegt úr skútunni eftir í veiðarfærum Oddgeirs
EA. Komið var með þá muni til Grindavíkur í kvöld. Meðal muna sem komu í trollið var myndamappa með fjölda ljósmynda sem
hafa náð að varðveitast á hafsbotni síðan árið 2004 þegar skútan fórst.
Tveir menn voru á skútunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar náði til þeirra á
sínum tíma en aðeins annar þeirra lifði slysið af.
Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri Víkurfrétta tók á móti Oddgeiri er hann kom til Grindavíkur í kvöld og er það sem fram kemur hér að ofan unnið úr frásögn hans á vefnum vf.is, en að auki tók hann þessar myndir.

1039. Oddgeir EA 600 við komuna til Grindavíkur í kvöld, ásamt því sem varð eftir af skútunni í trolli bátsins © myndir Hilmar Bragi Bárðarson, 5. maí 2011

Skrifað af Emil Páli