03.03.2011 09:00
Sette Marie GG 59 ex Sjávarborg GK 60
Þetta skip var til um tíma hérlendis, enda smíðað að hluta líka hérlendis, en nánar um það fyrir neðan myndina.

Sette Marie GG 59 ex 1586. Sjávarborg GK 60, í Hirtshals © shipspotting, Peter Kjellsson
Skrokkur skipsins var smíðaður hjá Gdynska Stoczania Romontowa S.A., Gdynia, Póllandi. Dreginn til Akraness þar sem skrokkurinn var lengdur og yfirbyggður hjá Þorgeir og Ellert hf. 1978. Síðar var lokið við smíðina með símanúmeri 61 hjá Slippstöðinni hf. Akureyri á árunum 1978-1981. Þar sem illa gekk að fá kaupanda að skipinu gekk það undir nafninu ,,Flakkarinn". Það var að lokum afhent 30. janúar 1982.
Selt úr landi til Svíþjóðar 27. ágúst 1993 og síðan selt til Finnlands 2007.
Endurbyggður í Danmörku 1994.
Til stóð að Miðnes hf. í Sandgerði keypti skipið aftur til lands sumarið 1994, en ekkert varð úr því og enn á ný var það tekið til alvarlegrar athugunar, án niðurstöðu haustið 1995.
Nöfn: Þórunn Hyrna Ea 42, Sjávarborg GK 60, Santos GG 361, Sette Maria GG 59, Monsun GG 934 og núverandi nafn: Karelía FIN 133K

Skrifað af Emil Páli