21.11.2010 16:00
Stór og fallegur þorskur
Það var stór og fallegur þorskur sem hinir rauðu bátar báru að landi í Njarðvík í dag. En undanfarna daga hefur aflinn nánast eingöngu verið fallegur og stór þorskur hjá bæði Sægrími GK og Maron GK, en Sægrímur hefur aðallega verið með netin í Garðsjó og mjög nálægt Garðskagavita og Maron frekar stutt norð, norð vestur af Garðskaga. Höfðu gárungarnir að orði að þorskurinn hefði verið að heimsækja gamla fólkið á Garðvangi, - svona smá grín.
Hér birti ég myndir sem ég tók að handahófi af þorskinum í tveimur körum sem komu upp úr Sægrími og eins birti ég myndir af báðum bátunum er þeir komu í land i og strax eftir hádegið í dag.

Stór og fallegur þorskur, en þetta eru þó ekki stærstu þorskarnir sem ég sá meðan ég staldraði þarna við
2101. Sægrímur GK 525, kemur inn til Njarðvíkur í dag
363. Maron GK 522, kemur að landi í Njarðvik í dag
© myndir Emil Páll, 21. nóv. 2010
