22.10.2010 18:15
Bláfell: Fimm nýsmíðaverkefni og 1 í endurbótum
Þau hjá Bláfelli ehf., á Ásbrú, þurfa ekki að kvarta undan lélegri verkefnastöðu, sem stendur. Hjá fyrirtækinu eru fimm bátar í framleiðslu, auk eins sem er í endurbótum eftir strand.

Samkvæmt samningi á fyrirtækið að afgreiða í desember nk. nýjan bát af gerðinni Sómi 960, en um er að ræða bát sem smíðaður er í mótum af Sóma 870 og síðan lengdur. Báturinn er seldur til aðila í Reykjanesbæ.
Þá hefur fyrirtækið haft sem íhlaupavinnu bát af gerðinni Víking og bíður vinna við hann meðan unnið er við hin verkefnin.

Jullan

Mótin af Sóma 695 og Sóma 795
Auk lítillar jullu sem er í smíðum er fyrirtækið að hefja smíði á mun ódýrari bátum en þekkst hafa og eru af gerðinni Sómi 695 og Sómi 795.

Þessu til viðbótar standa yfir miklar endurbætur og viðgerðir á 6489. Fjöður GK 90 sem strandaði á síðasta sumri rétt utan við Fuglavík í Sandgerði
© myndir Emil Páll, 22. okt. 2010

Skrifað af Emil Páli