18.11.2009 08:57
Keflvíkingur KE 100 / Marta Ágústsdóttir GK 14
967. Keflvíkingur KE 100
967. Keflvíkingur KE 100, í höfn í Njarðvík
967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Njarðvíkurhöfn
967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Grindavík
967. Marta Ágústsdóttir, í Njarðvíkurslipp 2008
967. Marta Ágústsdóttir GK 14, í Grindavík 2008 © myndir Emil Páll
Smíðanr. 403 hjá Veb. Elbewerdt í Boizenburg, Þýskalandi 1965, eftir teikningu Hjálmar R. Bárðarsonar. Yfirbyggður að hluta við bryggju í Njarðvik 1976 og framkvæmdum lokið í Danmörku 1977-78. Um leið var hann lengdur þar ytra.
Samkvæmt sölusamningi átti Miðnes hf. að afhenta Njáli hf. skipið 15. nóv. 1995 en gerði ekki. Fóru leikar því þannig að kaupandi krafðist með dómi að skipið yrði tekið úr vörslu seljanda og féll sá dómur 9. feb. 1996 og var skipið kyrrsett á Reyðarfirði 12. feb. og eftir það var samið um afhendingu að lokinni loðnuvertíð.
Nöfn: Keflvíkingur KE 100, Bergur Vigfús GK 53, Marta Ágústsdóttir GK 31 og núverandi skráning er Marta Ágústsdóttir GK 14.
Skrifað af Emil Páli
