11.11.2009 12:57

Þórir SF 77 / Guðbjörg Steinunn GK 37 á leið til Líbíu

Samkvæmt bryggjuspjalli í Sandgerði í morgun, er Guðbjörg Steinunn GK 37 senn á förum frá Akranesi til Líberíu eða Líbíu. En Íslendingur sem þar hefur rekið togara sem lengi lá við bryggju í Hafnarfirði fyrir mörgum árum og bar annað hvort nafnið Sveinn Rafn SU ex Hafrafell og sennilega ex Klara Sveinsdóttir, hefur nú keypt Guðbjörgu Steinunni. Umræddur aðili hefur haft veiðiheimild íslendinga á Túnfiski, auk þess sem togarinn hefur haft ýmis önnur verkefni þar ytra og mun Guðbjörg Steinunn fara í þau verkefni. Samkvæmt áliti hér fyrir neðan hefur báturinn nú fengið nafnið Steinunn AK 36.

                                  1236. Þórir SF 77, í Njarðvík  © mynd Emil Páll 1986


        1236. Guðbjörg Steinunn GK 37, á Akranesi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

Smíðanr. 20 hjá Stálvík hf. Garðabæ 1972 eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar. Lengdur 1973. Yfirbyggður Njarðvík 1986.

Nöfn: Þórir GK 251, Þórir SF 77, Þórir II SF 777, Ólafur Magnússon HU 54, Guðbjörg Steinunn GK 37 og núverandi nafn Steinunn AK 36.