Færslur: 2015 Janúar

16.01.2015 12:35

Njáll RE 275, Katrín GK 266 og Sævík GK 257, núna í hádeginu


           1575. Njáll RE 275, 1860. Katín GK 266 ( inni í húsinu) og 1416. Sævík GK 257, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, nú í hádeginu © símamynd Emil Páll, 16. jan. 2015

16.01.2015 12:13

Jón á Hofi ÁR 62

 

          1562. Jón á Hofi ÁR 62, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd  Ólafur Guðmundsson, í ágúst 2003

16.01.2015 11:12

Jón á Hofi ÁR 62 og Gerður ÞH 110

 

         1562. Jón á Hofi ÁR 62 og 1125. Gerður ÞH 110, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd  Ólafur Guðmundsson, í ágúst 2003

16.01.2015 10:11

Skúmur HF 177

 

         1506. Skúmur HF 177, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd  Ólafur  Guðmundsson, í maí-júní 2004

16.01.2015 09:10

Bjarni Ólafsson AK 70

 

          1504. Bjarni Ólafsson AK 70 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 28. maí 1987


          1504. Bjarni Ólafsson AK 70 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 18. feb. 1988


          1504. Bjarni Ólafsson AK 70 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 18. feb. 1988

16.01.2015 08:50

Framleiðsla Spútnik-báta að hefjast aftur, en nú í Litháen

Samkvæmt því sem Guðni Ölversson setti í morgun inn á síðuna, stendur nú til að hefja framleiðslu á Spútnink- bátunum aftur aftur. Sú smíði fer fram í Litháen eftir því sem hann hefur heyrt og þeir ætla að bæta 15 metra bátum við framleiðsluna.

Birti ég hér myndir af tveimur Spútnik-bátum


                    Austhavet F61G ex 2632. í Sandgerði © mynd Emil Páll, 8. júlí 2014


                     2652. Darri EA 75, í Njarðvík © mynd Emil Páll, 4. júní 2014


16.01.2015 08:29

Haffari, í Reykjavík

 

        1463. Haffari, í Reykjavík © mynd shipspotting Folke Österman, 14. sept. 2013

16.01.2015 07:00

Wilson Lahn, á Akureyri

 

         Wilson Lahn, á Akureyri © mynd Víðir Már Hermannsson, 14. jan. 2015

16.01.2015 06:00

Sconbrus, á Akureyri


 

 

         Sconbrus, á Akureyri © mynd Víðir Már Hermannsson, 14. jan. 2015

15.01.2015 21:00

Hilmir SU 171

Þessar myndir tók Gísli Aðalsteinn Jónasson, á árunum 1986 til 1989 og er um mikla syrpu að ræða. Í neðra horninu hægra megin má sjá dagsetningu, hvenær viðkomandi mynd var tekin.
































                    1551. Hilmir SU 171 © myndir Gísli Aðalsteinn Jónasson

AF FACEBOOK:

Guðni Ölversson Manni þótti þetta stórglæslegt skip þegar þetta var nýtt. Ugglaust góður bátur. En núna finnst mér þetta forljótt. Stutt, breitt og hátt.

15.01.2015 20:21

Eldeyjar - Súla KE 20 / Sóley Sigurjóns GK 200


          1481. Eldeyjar Súla KE 20, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson, í okt. 1995


        1481. Sóley Sigurjóns GK 200, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson, í sept. 1997


        1481. Sóley Sigurjóns GK 200, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson, í des. 2001


         1481. Sóley Sigurjóns GK 200, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson, í maí 2002


          1481. Sóley Sigurjóns GK 200, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson, í maí 2002

15.01.2015 20:00

Sólplast í dag: Óvænt niðurstaða í viðgerð á Von GK 113

Um síðustu helgi sagði ég frá ævintýralegri ferð á bátnum Von GK 113, sem lenti í tjóni á Skagaströnd og tryggingafélagið vildi að báturinn yrði fluttur til Sandgerðis í viðgerð hjá Sólplasti. Fyrst var hann settur á bíl og ekið með hann til Akraness, þar sem hann átti að sigla til Njarðvíkur og fara þar í Gullvagninn hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur til Sandgerðis.
Ferðin fór þó nokkuð á annan veg. Í fyrsta lagi var veður orðið svo vont þegar komið var til Akraness að báturinn ásamt tveimur öðrum sem notuðu ferðina, urðu að bíða á flutningavögnum þar til veður lægði svo hægt væri að hífa þá í sjóinn og var það nokkra daga bið. Rétt fyrir síðustu helgi voru þeir loksins hífðir í sjóinn og sigldu fljótlega til Suðurnesja.
Þegar Von GK átti að fara í Gullvagninn kom upp annað vandamál og fór svo að báturinn sigldi til Sandgerðis og stóð til að hífa hann þar á land. Áður en að því kom fór Kristján Nielsen hjá Sólplasti að skoða hvað væri að í bátnum og kom þá í ljós að það var ekki ástæða til að taka hann á land til að gera við hann og hóf hann því í gær viðgerð um borð í bátnum við bryggju í Sandgerði og á von á að ljúka henni jafnvel á morgun. Mun báturinn þá geta aftur hafið veiðar á ný, en einhvern tímann síðar verður hann tekinn á land til að klára viðgerðina sem ekki er aðkallandi nú.
Birti ég hér myndir sem ég tók í Sandgerði í dag. Þó ótrúlegt er það ekki aðeins síðan hér sem er biluð, eða báturinn því í gær bilaði linsa á myndavélinni minni, þannig að ég get aðeins tekið með aðdráttarlinsu og því eru allar myndirnar nema þar sem báturinn sést allur við bryggju, teknar í dag á símann minn og á þremur þeirra sést Kristján vera á leið um borð í bátinn.


               2733. Von GK 113, í Sandgerði, í dag © mynd Emil Páll, 15. jan. 2015

        Kristján Nielsen, við Von GK, í Sandgerðishöfn í dag © símamynd Emil Páll, 15. jan. 2015

      Kristján Nielsen, við Von GK, í Sandgerðishöfn í dag © símamynd Emil Páll, 15. jan. 2015

        Kristján Nielsen, við Von GK, í Sandgerðishöfn í dag © símamynd Emil Páll, 15. jan. 2015

       2733. Von GK 113, við bryggju í Sandgerði í dag. Við hlið bátsins sést innsiglingabaugja sem á eftir að setja í innsiglinguna til Sandgerðis © símamynd Emil Páll, 15. jan. 2015

 

AF FACEBOOK:

Guðni Ölversson Hver á þennan bát Emil.
Emil Páll Jónsson Útgerðarfélag Sandgerðis
Guðni Ölversson Þetta eru flottir bátar. Nú á að hefja framleiðaslu á Spútnink aftur. Sú smíði fer fram í Litháen eftir því sem ég hef heyrt og þeir ætla að bæta 15 metra bátum við framleiðsluna.

15.01.2015 19:20

Eyvindur KE 37 - í dag Gunnar Halldórsson ÍS 45


          1475. Eyvindur KE 37 - í dag Gunnar Halldórsson ÍS 45, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd  Ólafur Guðmundsson, í ágúst 1998

15.01.2015 18:37

Bilun hjá 123.is

Nú í rúma klukkustund hefur bilun verið hjá 123.is og því sjá lesendur ekki það sem sett er fram, nema þeir kunni að fara á bak við kerfið, sem sumir kunna.

 

Vonandi verður þetta ekki lengi

15.01.2015 18:19

Reykjaborg RE 25 - í dag Sylvía


        1468. Reykjaborg RE 25 - í dag Sylvía, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Ólafur Guðmundsson