Færslur: 2013 Nóvember
16.11.2013 13:00
1178
Þessa mynd tók ég í gær í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, en þá var ekki búið að merkja bátinn að nýju, en síðast hét hann Blíða SH 277, en nýir eigendur eru komnir að bátnum núna.
Trúlega er báturinn þarna utandyra vegna þess að Elding II var að koma inn í bátskýlið og Sædís Bára GK 88 að fara út.

1178. síðast Blíða SH 277, í Skipasmíðastöð Njarðvikur í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013
Trúlega er báturinn þarna utandyra vegna þess að Elding II var að koma inn í bátskýlið og Sædís Bára GK 88 að fara út.

1178. síðast Blíða SH 277, í Skipasmíðastöð Njarðvikur í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 12:00
Náttfari ÞH 60, drekkhlaðinn
Hér koma tvær myndir til viðbótar frá Svavari Guðna Gunnarssyni, af skipum sem faðir hans Gunnar Svavarsson var á. Nú er það Náttfari ÞH 60 að koma inn til Reykjavíkur. Telur Svavar að hann sé þarna sennilega á loðnuveiðum, á árunum 1978 eða 1979


1035. Náttfari ÞH 60, að koma inn til Reykjavíkur, sennilega 1978 eða 1979 © myndir frá Svavari Guðna Gunnarssyni, ljósm.: ókunnur
Smíðaður i Bozenburg, Austur - Þýskalandi 1967. Lengdur og yfirbyggður 1977. Fór í pottinn fyrir nokkrum árum.
Nöfn: Náttfari ÞH 60, Náttfari RE 75 og Heimaey VE 1


1035. Náttfari ÞH 60, að koma inn til Reykjavíkur, sennilega 1978 eða 1979 © myndir frá Svavari Guðna Gunnarssyni, ljósm.: ókunnur
Smíðaður i Bozenburg, Austur - Þýskalandi 1967. Lengdur og yfirbyggður 1977. Fór í pottinn fyrir nokkrum árum.
Nöfn: Náttfari ÞH 60, Náttfari RE 75 og Heimaey VE 1
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 11:00
Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36 / Orri ÍS 180 - þetta eru fyrsta og síðan núverandi nafn á frægum báti
Svavar Guðni Gunnarsson, sendi mér myndir af bátnum eins og hann leit út í fyrstu. Þarna er hann, Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36 á síldveiðum, hér á árum áður þegar hin sönnu síldarári stóðu yfir, en á þeim tíma var faðir hans, Gunnar Svavarsson á bátnum.
Hér fyrir neðan birti ég þessar tvær myndir frá Svavari og eina mynd af bátnum eins og hann leit út í gær en þá mynd tók ég af honum. Þar að auki birti ég sögu bátsins en um frægan bát er að ræða.
- Sendi ég Svavari Guðna, kærar þakki fyrir þessar myndir og aðrar sem koma í næstu færslu -


923. Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36, á síldarárunum í denn © myndir frá Svavari Guðna Gunnarssyni

923. Orri ÍS 180, í Sandgerði í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013 - ótrúleg en samt satt, þetta er sami báturinn
Smíðaður hjá Fredrikssund Skipsværf, Frederikssund, Danmörku 1957, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar.
Meðan báturinn bar Ásmundarnafnið var hann tekinn á leigu til smyglferðar til Belgíu, þar sem hann var fylltur af áfengi aðallega Seniver og var búið að skipa því í land hérlendis, er upp komst um málið.
Samkvæmt lögum er það flutningstæki sem flytur ólöglegan farm til landsins að stærstum hluta gert upptækt til Ríkissjóðs. Þó eigandinn í þessu tilfelli væri að öllu leiti saklaus varð Alþingi að gefa undanþágu frá þessu og voru sérstök lög þess efnis samþykkt frá Alþingi.
Eftir þetta var fékk báturinn gælunafni Seniver, sumir sögðu Seniver-báturinn, aðrir Seniverdallurinn og annað í þá veru.
Endurbyggður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 1976 - 1979 að verkið stöðvaðist. Í janúar 1982 var ákveðið að farga bátnum þar sem Fiskveiðasjóður vildi ekki fjármagna endurbæturnar á bátnum. Aldrei varð þó gert í málinu og hófust endurbætur aftur í júní 1984 og lauk þeim 17. febrúar 1985. Var hann þá m.a. yfirbyggður og breytt í frambyggt skip.
Samþykkt var heimild 3. okt. 1994 til að úrelda bátinn, en af því varð þó ekki.
Báturinn lá við bryggju eftir að gírinn hrundi í honum. Fyrst í Sandgerði en eftir eigandaskipti var hann dreginn til Njarðvíkur. Átti eftir að skipt hafði verið um gír að hefja útgerð á hann að nýju, en ekkert varð af því og því lá hann í Njarðvikurhöfn þar til að hann var tekinn upp í Skipasmíðastöð Njarðvikur og út kom Orri ÍS 180, sem fór síðan eftir nokkra mánuði á rækjuveiðar fyrir norðurlandi, þar sem hann hefur verið þar til nú að hann stundar veiðar á Eldeyjarrækjunni.
Nöfn: Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36, Ásmundur GK 30, Flosi ÍS 15, Sólrún GK 61, Símon Gíslason KE 155, Sigurður Þorkelsson ÍS 200, Skálaberg ÞH 244, Hlíðar Pétur NK 15, Stakkanes ÍS 72, Gísli Júl ÍS 262, aftur Hlífar Pétur NK 15, Sunna Björg HF 87, Kolbrún ÍS 74, Freyja GK 364, Röstin GK 120 og núverandi nafn: Orri ÍS 180
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 10:00
Sunnuberg: Sigurjón, Guðjón, Guðni og Magnús

Sigurjón Þórhallsson 1. stýrimaður, Guðjón Tómasson 1. vélstjóri, Guðni Gunnarsson yfirvélstjóri og í brúarglugganum er Magnús Þorvaldsson skipstjóri, á 1002. Sunnubergi © mynd í eigu Magnúsar Þorvaldssonar, ljósm.: ókunnur.
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 09:00
Skvetta SK 7, Elding II og Sædís Bára GK 88, inni í húsi
Þessa mynd tók ég í gær með nokkrum aðdrætti og sýnir hún þrjá báta inni í bátaskýlinu hjá Skipasmiðastöð Njarðvíkur

1428. Skvetta SK 7, 7489. Elding II og 2829. Sædís Bára GK 88, inni í Bátaskýlinu hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur, í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013

1428. Skvetta SK 7, 7489. Elding II og 2829. Sædís Bára GK 88, inni í Bátaskýlinu hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur, í gær © mynd Emil Páll, 15. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 08:00
Steini Vigg SI 110

1452. Steini Vigg SI 110, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 9. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
16.11.2013 07:00
Brim við Sandgerði í gær


Brim við Sandgerði í gær © myndir Emil Páll, 15. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 21:13
Sunnuberg GK 199, í síldarsmugunni og víðar










1002. Sunnuberg GK 199, í síldarsmugunni 1992 og víðar © myndir Magnús Þorvaldsson
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 21:00
Andrea

2787. Andrea, í Reykjavík © mynd shipspotting, gesturleo, 1. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 18:00
Skipi á þurru landi, eftir að fellibylur gekk yfir Filippseyjar



Skip á þurru landi í Tacloban eftir að fellibylurinn gekk yfir Filippseyjar © myndir AFP
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 17:00
Baldur hf., Keflavík
Hér koma myndir úr fiskverkuninni hjá Baldri hf. í Keflavik, hér fyrr á árum




Fiskverkun hjá Baldri hf., í Keflavík, hér fyrr á árum © myndir Þórir Ólafsson




Fiskverkun hjá Baldri hf., í Keflavík, hér fyrr á árum © myndir Þórir Ólafsson
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 16:00
Brim við Grindavík

Brim í innsiglingunni til Grindavíkur, séð frá 239. Tjaldanesi GK 525 © mynd Þorgrímur Ómar Tavsen, 12. nóv. 2013
Skrifað af Emil Páli
15.11.2013 15:00
Costa Concordia á leið í Fornaes?

Costa Concordia, sem sökk í jan. 2012, er hugsanlega á leið til Fornaes, í Danmörku þar sem skipið verður rifið © mynd og frásögn: Skipini.fo
Skrifað af Emil Páli


