01.09.2019 13:23

Skrifað undir smíðasamning af nýjum Baldvin Njálssyni

Í fyrradag, 30. ágúst 2019, á afmælisdegi Baldvins Njálssonar heitnum, skrifaði Nesfiskur undir samning um nýsmíði á nýjum Baldvin Njálssyni GK 400. Baldvin verður smíðaður hjá Armon í Vigo á Spáni. Áætlað er að afhenda skipið haustið 2021.