29.12.2017 15:18

HB Grandi hefur selt ísfisktogarann Ottó N. Þorláksson RE 203 til Ísfélags Vestmannaeyja

HB Grandi hefur selt ísfisktogarann Ottó N. Þorláksson RE 203 til Ísfélags Vestmannaeyja. Söluverðið er 150 milljónir króna og verður það greitt við afhendingu sem fer fram eigi síðar en 31. maí næstkomandi. Ottó N. Þorláksson var smíðaður árið 1981 í Garðabæ og hefur skipið reynst afburðar vel.

 

Hér handsala Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja og Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, kaupsamninginn.

 

1578. Ottó N. Þorláksson RE 203, sem nú hefur verið seldur til Vestmannaeyja