15.11.2017 17:18
Tjaldanes, Polarstjarnan, Þórsnes, Sonar og Steini Sigvalda í pottinum í Ghent í Belgíu
Í gær birti ég mynd af fjórum bátum sem komnir voru til niðurrifs í Ghent í Belgíu. Upplýsingarnar með þeirri mynd voru ekki alveg réttar og því birti ég nú aftur myndina, en Þorkell Hjaltason, sem er ásamt öðrum til ábyrgir fyrir að koma bátum út, hefur upplýst mig um myndina og því koma réttar upplýsingar nú, en þessi mynd var tekin af G.Gyssels 31. ágúst 2017. Þorkell bætti þó betur og kom með tvær myndir til viðbótar og sýnir önnur sömu báta frá öðru sjónarhorni, en hin sýnir 5. bátinn, Steina Sigvalda GK 526.
Þar með birti ég nú þrjár myndir er sýna Tjaldanes GK 525 og Steina Sigvalda GK 526, auk Þórsnes SH 109, en sá síðast nefndi sem kom frá Stykkishólmi dró hina tvo frá Njarðvík. Erlendur dráttarbátur dró Sónar og Polarstjarnan KG 349, en þeir báðir tengdust Íslandi þó þeir bæru erlend heiti og höfðu verið í höfn í Hafnarfirði.
Auk þessara fimm bátar, fóru tveir frá Hornafirði síðar í sumar þ.e. Ársæll ÁR 66 og Arnar ÁR 55, en ég hef birti myndir af þeim er þeir fóru frá Hornafirði.
Þá er spurning um veður hvort tveir til viðbótar fari út nú í haust eða í vetur á vegum sömu aðila, þ.e. að Nökkvi ÞH 27 dragi Stapaey SU 120, ex Haraldur Böðvarsson AK, en hann hefur verið notaður undanfarin ár sem fóðurprammi í Berufirði.
![]() |
F.h. 239. Tjaldanes GK 525, Polarstjanan KG 349( sá svarti) , 967. Þórsnes SH 109 (sá blái ) og Sónar ( sá rauði) í Ghent, Belgíu © mynd G.Gyssels 31. ágúst 2017
![]() |
Sömu bátar, frá öðru sjónarhorni og nöfnin því talin frá vinstri © mynd Þorkell Hjaltason, 2017
![]() |
1424. Steini Sigvalda GK 525 © mynd Þorkell Hjaltason, 2017 og eins og hinir í Ghent í Belgíu.



