03.10.2017 21:00

Berglín GK, í vandræðagangi

Eins og ég sagði frá nýverið fór Berglín úr slippnum í Njarðvík, með hjálp Auðuns. Stuttu eftir að skipið var komið að bryggju í Njarðvík fór það til Sandgerðis, en koman þangað var ekki eins og búist var við, því skipið sigldi á hafnargarðinn þar sem afturábakgírinn virkaði ekki. Þó nokkrar skemmdir urðu á bryggjunni en skipið sjálft slapp vel. Mun ég á morgun birta myndir sem ég tók í dag bæði af skipi og bryggjunni. Er skipið átti að fara út, kom fljótlega í ljós bilun á spildælum og fór það því til Keflavíkur, þar sem dælunum var komið í viðgerð.

Hér kemur smá myndasyrpa sem ég tók gær þegar skipið kom til Keflavíkur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

        1905. Berglín GK 300, að koma til Keflavíkur í gær © myndir Emil Páll, 2. okt. 2017