26.08.2017 20:21
Bliki SU 108 / Vörðufell KE 117 / Bolli KE 46 / Oddbjörg og nú skemmtibátur í Þrándheimi.
Smíðanr. 20 hjá Skipasmíðastöð Austfjarða hf., Seyðisfirði 1972. Eftir úreldingu hér heima 24. nóv. 1992, var báturinn seldur Lárusi Inga Lárussyni, búsettum í Noregi og gaf hann honum nafnið Oddbjörg. Lagði hann af stað með bátinn undir norsku flaggi, að kvöldi 30. júlí 1993 og kom til heimahafnar í Noregi 8. ágúst. Þar stóð til að gera bátinn að skemmtibáti og var hann gerður upp í Noregi 1993. Síðan hefur hann verið gerður út frá Þrándheimi, í Noregi, sem skemmtibátur.
Nöfn. Kristín NK 17, Bliki SU 108, Vörðufell HF 1, Vörðufell KE 117, Bolli KE 46 og Oddbjörg., - myndir af bátnum undir nöfnunum sem eru í fyrirsögninni, ljósm. Emil Páll.
![]() |
1248. Bliki SU 108, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll
![]() |
1248. Vörðufell KE 117, í Sandgerðishöfn © mynd Emil Páll
![]() |
1248. Bolli KE 46, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll
![]() |
Oddbjörg L 9567 frá Noregi ex 1248. Bolli KE 46, í Njarðvíkurhöfn, undir norsku flaggi © mynd Emil Páll




