22.05.2017 21:00

Skipsflök við Stykkishólm í máli og myndum og smá saga með

S.l. laugardag gengu þeir Sigurbrandur Jakobsson og Gunnar Th. niður í fjöru við Stykkishólm og skoðuðu bátsflök sem þar voru, sem sum hver í mörgum bútum. Birti ég nú myndir af flökunum sem Sigurbrandur tók, auk mynda af sömu bátum þegar þeir voru og hétu, en þær myndir eru úr mínu safni.

Mun ég birta í stórum dráttum sögu af þessum bátum, þó ég geri mér grein fyrir að einhver ágreiningur getur verið um hvaða bátar þetta eru:

 

334. Smíðuð í Svíþjóð 1941 og bar nöfnin Björg SU 9, Ingibjörg KE 114 og Ingibjörg SH 142. Mikill eldur kom upp í bátnum 24. ágúst 1977. Áhöfnin bjargaðist í gúmíbjörgunarbát. Báturinn var talinn ónýtur eftir brunann og tekinn af skrá 15. ág. 1979.

 

401. Smíðaður í Danmörku 1953 og bar nöfnin: Einar Hálfdáns ÍS 3, Kristján Hálfdáns ÍS 8, Farsæll SK 3 og Guðrún María SH 74. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 22. des. 1976.

 

762. Smíðaður í Danmörku 1958 og bar nöfnin: Heimir SU 100, Skagaröst KE 34, Skagaröst ST 34,  Ingibjörg ST 37 og Ingibjörg BA 304, en man ekki framhaldið.

 

Hér koma myndirnar og texti undir þeim:

 

334. Ingibjörg KE 114 í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 1971-77

 

401. Guðrún María SH 74 í slippnum í Stykkishólmi © mynd Emil Páll, á 8. áratug siðustu aldar.

 

            762. Skagaröst KE 34 © mynd Snorri Snorrason

 

401. Guðrún María SH 74 eða Ingibjörg SH 142  sá innri  og 762. Ingibjörg BA 304, sá fremri © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017

 

1238. Fjalar Vagn SH 330 © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017

 

Stefnið og Klussin af 762. Ingibjörgu BA 304 © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017

 

Afturendinn með vélarundirstöðum af 762. Ingibjörgu BA  304 © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017

 

334. Ingibjörg SH 142 eða 401. Guðrún María SH 74 © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017

 

Framendinn af 762. Ingibjörgu BA  304 © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 20. maí 2017