12.03.2017 14:34

Hver er Óskar ,,sauður" Franz

Maður að nafni Óskar Franz hefur nú í nokkur ár fundið allt sem hann getur til að skjóta á mig og í dag kom hann með athugasemd þar sem hann kallaði mig ,,sauð", sem ég mun framvegis nota á hann. Tilefni afhugasemdarinnar var að ég vissi ekki nafn á bát bara númerið og notaði því tegundanafnið, en það má víst ekki gera að hans dómi, þrátt fyrir að ef menn eru að fjalla t.d. um sómabát en vita ekki nafnið nota þeir oft að merkja hann sem Sóma eitthvað eins og ég var þarna að gera.

Umræddur Óskar hefur skammað ýmsa fyrir að senda mér myndir og annað í þá veru, því honum er mikið í nöp við mig. Hvað um það hér birti ég mynd af Óskari svo menn þekki manninn, en læt frekari skrif vera.

      Óskar Franz eða á

kannski að segja Óskar sauður Franz