20.11.2016 21:00

Atlantic Polaris, Magni, Jötunn og Danavik, í Helguvík í dag - smá syrpa

Skömmu eftir hádegi kom Danavík til Helguvíkur, en það skip er að koma í annað skiptið í þessum mánuði. Á sama tíma var tanskskipið Atlantic Polaris að nálgast Garðskaga og Jötunn og Magni að koma úr Reykjavík til að hjálpa því skipi að í Helguvík. Því miður tók það svo langan tíma að koma síðarnefnda skipinu inn í Helguvík að birtan var horfin fyrir dimmunni og því ekki hægt að taka mynd af því, en ég hafði ætlað mér að ná báðum skipunum á mynd í Helguvík, en varð að hætta vegna dimmunnar og kemur þá í ljós á morgun hvort ég næ þeim báðum.  Að vísu tók ég það góða syrpa af Danavík 4. nóv. sl. að það skiptir ekki miklu máli þó það verði farið, en vonandi ekki hitt.

Birti ég nú fjórar myndir af skipunum sem ég hafð í minni vörslu, en tvær þeirra eru skjáskot af MarineTraffic og sýna skipin fjögur eins og áður hefur komið fram. Á öðru skjáskotinu sjást báðir Reykvíkingarnir bíða við Helguvík og Danavík komin inn til Helguvíkur en tankskipið við Garðskaga og á hinu skjáskotinu er Magni kominn með hafsögumanninn að tankskipinu.


             Danavík, siglir inn í Helguvík 4. nóv. sl. © mynd Emil Páll

 

      Atlantic Polaris © mynd Prieschka Beertjes, MarineTraffic. 31. ágúst 2009

 

Atlantic Polaris, Magni, Danavik o.fl. © skjáskot af MarineTraffic, kl. 16.10 í dag 20. 11. 2016

 

        2686. Magni,  kominn með hafnsögumanninn um borð í Atlantic Polaris, Danavik komin í Helguvík og 2756. Jötunn bíður eftir komu skipanna © skjáskot af Marine Traffic, kl. 16.34, 20. nóv. 2016