01.11.2016 21:00
Sævík GK 257, loksins að hefja áfangann í stórbreytingar
Í morgun var Sævík GK 257, sem verið hefur til geymslu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, sjósett að nýju en stefnt er að því að um helgina komi erlendur dráttarbátur og dragi bátinn til Póllands þar sem hann fer í miklar breytingar, það miklar að hann verður nánast nýr á eftir. Raunar verður aðeins um 40% af gamla bátnum eftir og í staðinn kemur nýsmíði, ný vél og tæki, svo og 4 metra lenging. En reikað er með að hann komi aftur heim til Grindavíkur í byrjun árs 2018.
Eins og aðrir bátar Vísis í Grindavík verður báturinn notaður sem línubátur.
Umræddur bátur var smíðaður í Mandal í Noregi 1975 og hefur borið nöfnin Skarðsvík SH, Skarðsvík AK, Ásborg EA, Arney KE, Steinunn SF. Hafursey VE og núverandi nafn Sævík GK.
Hér koma myndir af bátnum þegar hann kom niður úr slippnum og eins er Auðunn hjálpaði honum að bryggju í Njarðvíkurhöfn.
|
|
||||||||||||||||||||||
|
|
1416. Sævík GK 257, kemur úr Skipasmíðastöð Njarðvíkur í morgun og
fær hjálp frá 2043. Auðunn, til að komast að bryggju í Njarðvíkurhöfn
© myndir Emil Páll, 1. nóv. 2016












