01.10.2016 14:05
Karine E. GR 8-8 ex 2469. Ólafur GK 33, verður 5. Kínabáturinn sem lengdur verður í Njarðvík
Kominn er til Njarðvíkur grænlenski báturinn Karina E. GR-8-8, sem hét fyrst Ólafur GK 33, er hann kom nýr frá Kína, en var aldrei notaður hérlendis. Nú verður hann 5. Kínabáturinn sem Skipasmíðastöð Njarðvíkur mun lengja, í þessari törn sem nú stendur yfir hjá þeim.
![]() |
2469. Karina E. GR-8-8 ex 2469. Ólafur GK 33, í Njarðvíkurhöfn © símamynd Emil Páll, 1. okt. 2016
Skrifað af Emil Páli

