19.06.2016 21:00

Togarinn, kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur í nótt - 6 myndir

Af fyrirsögninni mætti ráða að verið sé að ræða um togveiðiskip, þ.e. fiskiskip en svo er ekki. Heldur er hér um að ræða hið öfluga dráttarskip sem Skipaþjónusta Íslands hefur keypt hingað til lands. Togarinn, er því dráttarskip, en um leið togar það skip eða annað sem til þarf. - Skipið kom til Reykjavíkur í nótt og í dag tók ég þessar 6 myndir af skipinu, en staðsetning þess var þannig að ekki var mjög auðvelt að taka flottar myndir af því og þess vegna verða myndirnar eins og þær eru.


 


 


 


 


 


     2923. Togarinn, IMO7510561, í heimahöfn, Reykjavík í dag © myndir Emil Páll, 19. júní 2016