20.05.2016 21:00

Bolli KE 400, fluttur í dag í styttingu í Sólplast, fyrir Noregsmarkað - 22 myndir

Hér fylgjumst við með því þegar Bolli KE 400 var kominn að bryggju í Keflavíkurhöfn og hafði losað sig við makrílbúnaðinn sem verið hefur á bátnum frá síðustu makríkvertíð. Frá þeirri bryggju sigldi hann að hafnargarðinum þegar von var á Jóni & Margeiri til að taka hann upp og flytja út í Sandgerði, til Sólplasts, en þar á að stytta bátinn, sem margt bendir til að sé nú fljótlega á förum til Noregs, gangi sala hans upp.

Ekki er þó um mikla styttingu að ræða heldur aðeins 10 sentimetra, því hann er 8 sentimetrum of langur til að komast inn í Norska smábátakerfið. Verður því tekið aðeins framan af stefni bátsins.


     6996. Bolli KE 400, í Keflavíkurhöfn í dag, eftir að hann hafði losnað við makrílbúnaðinn


      Hér siglir hann í átt að hafnargarðinum þar sem taka á bátinn upp


                               Kominn að hafnargarðinum, í Keflavík


                                   Jón & Margeir, mættir á staðinn

                                                       Hífing hafin


 


 


                                  Báturinn kominn á vagninn


 


                                      Ekið upp af hafnargarðinum


                                 Hér er ekið eftir Ægisgötunni, í Keflavík


       Hér er komið upp úr Grófinni, en farið var þar í gegn og eru það hús á Berginu sem þarna sjást

 

       Komið út í Sandgerði og beygt inn á athafnarsvæði Sólplasts


                        Bíllinn staðsettur þar sem hífa á bátinn af


                             Hífing að hefjast við Sólplast í Sandgerði


 


     Margeir hjá Jóni & Margeir, seljandi bátsins, umboðsmaður kaupanda og Kristján í Sólplasti


 


 


 


             Báturinn kominn á þann stað sem styttingin verður framkvæmd


      Flutningabíllinn hjá Jóni & Margeiri og 6996. Bolli KE 400, í Sandgerði

                            © myndir Emil Páll, í dag 20. maí 2016