03.02.2015 21:22

Vonin KE 10, dró í dag Skvettu SK 7, til Njarðvíkur

Ekki fær maður alltaf tækifæri til að fylgja vel eftir því þó bátur sé dreginn, og hvað þá milli hafna. Það gerðist þó í dag.

Nokkur saga er um hvorn bátinn fyrir sig, og mun ég segja frá því í stórum dráttum, sérstaklega þann sem dreginn var. Sá er síðasti óbreytti Bátalónsbáturinn sem enn, skráður og heitir Skvetta SK 7. Báturinn hefur undanfarin ár verið m.a. í leigu, en ekki hefur það alltaf gengið upp eins og vera átti. T.d. var báturinn leigður bjartsýnum aðila í Sandgerði í maí í fyrra og sá ætlaði að taka a.m.k tvo báta á leigu og bjóða upp á nýja þjónustu þ.e. gefa ferðafólki kost á að fara með í róður. Ekki gekk það upp hjá viðkomandi og fór hann að róa, en án kvóta svo ekki gekk það heldur upp þannig. Á þessu stutta úthaldi hjá honum sem varla er hægt að telja í vikum, endaði báturinn með því að verða dreginn í land í Sandgerði með línuna í skrúfunni. Ævintýri hans endaði þar með og leigan fór í vanskil. Síðan hefur báturinn legið í Sandgerði og endaði sú vera með því að samkvæmt ósk eiganda bátsins var hann dreginn í dag til Njarðvíkur, en þar á eigandi bátsins heima.

Vonin sem dró bátinn í dag kom fyrir nokkrum dögum til Sandgerðis, eftir leigu á Bíldudal og eftir helgi er áætlað að hann verði tekinn upp í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, bæði til viðhalds og smávægilegra breytinga. Var því kjörið tækifæri að Vonin myndi draga Skvettu frá Sandgerði til Njarðvíkur.

Hér kemur mikil myndasyrpa sem ég tók við þetta tækifæri í dag af bátunum tveimur.


           Smá pus mætti Voninni KE 10, er hún kom fyrir Garðskagann í dag með Skvettur SK 7, í togi


                          Hér fara þeir fram hjá Útskálum í Garði


                 Nú er það Gerðabryggjan í Garði, sem farið er framhjá


                                    Hér er siglt fyrir Keflavíkina


                                Nú út af Vatnsnesi, í Keflavík


                                    Þá er Njarðvíkin framundan


                                                1631. Vonin KE 10


                 1631. Vonin KE 10, kemur með 1428. Skvettu SK 7


                                         1428. Skvetta SK 7


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


                           Þá er ferðalaginu lokið, að þessu sinni


                              © myndir Emil Páll, í dag, 3. feb. 2015

 

AF FACEBOOK:

Þorgrímur Ómar Tavsen Gott að eiga góða að, takk æðislega Siggi Kafari Stefánsson