12.01.2015 16:41
Birta SH, GK eða hvað - eigandi Valma ehf. í Reykjavík
Bátur þessi hefur verið við bryggju í Sandgerði nú um þó nokkurn tíma og var SH 707, en nú sýnist mér að GK sé komið á bátinn. Getur að vísu verið að GK sem báturinn bar fyrir nokkrum árum sem Freyja GK, sé að koma í gegn. Báturinn er í dag skráður í eigu fyrirtækis sem heitir Valma ehf., í Reykjavík.
![]() |
1927. Birta GK eða SH 707, í Sandgerði, í dag © mynd Emil Páll, 12. jan. 2015 |
Skrifað af Emil Páli

