11.09.2014 11:12

Hanna og smíða línukerfi sem kallast GKP Longline System.

Smári Karvel: Sendi smá póst um fyrirtæki sem starfar hér á Suðureyri 

Sæstál ehf á Suðureyri, Hefur í nokkur ár verið að hanna og smíða línukerfi sem kallast GKP Longline System. Kerfið samanstendur af uppstokkara, beitingartrekt og vinnurekka, Kerfið er nú þegar búið að fara í nokkra báta, sérstaklega á Flateyri og hefur kerfið reynst vel og sannað sig. Nú á dögunum voru þeir hjá Sæstál að ganga frá uppsetingu í Hrólf Einarsson ÍS 255 ex Sirrý ÍS 84 Í eigu  Valþjófs ehf. Hrólfur er þriðji báturinn sem mun róa með slíkt kerfi á Flateyri,  hinir eru Sjávarperlan ÍS 313 og Garðar ÍS 22

Ég fékk að taka nokkrar myndir og senda þér.

 

 

 

 


                                                © myndir Smári Karvel