|
177. Fönix ST 177, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, í dag © myndir Emil Páll, 8. sept. 2014
Þessi hefur borið tæplega 20 skráningar á rúmri hálfri öld, brunnið, strandað og er ennþá að
Sagt er að kötturinn eigi sér 8 líf, en þessi bátur sem er orðinn rúmlega hálfrar aldar gamall, hefur borið tæplega 20 nöfn og/eða skráningar, hann hefur brunnið, verið endurbyggður, strandað, átti að úreldast en hætt var við það og er enn gerður út.
Smíðanúmer 350 hjá Gravdal Skipbyggery, Sunde, Noregi 1960.
Endurbyggður og yfirbyggður hjá Dráttarbraut Keflavíkur hf. 1981-1986, eftir að eldur kom upp í bátnum, er hann hét Jón Ágúst GK 60, 28 sm. VNV af Garðskaga þann 31. janúar 1978. Áhöfn v/s Týs slökkti eldinn og dró bátinn síðan til Njarðvíkur.
Strandaði sem Bergvík VE 505, í Vöðlavík milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar 18. des. 1993. Við björgunartilraun á bátnum fékk björgunarskipið Goðinn á sig brot og strandaði og sökk 10. janúar 1994 og við það fórst einn skipverji Goðans, en Varnarliðið bjargaði sex skipverjum í aftakaveðri. Varðskipið Týr dró síðan Bergvíkina af strandstað lítið skemmda aðfaranótt 13. janúar 1994.
Úrelding var samþykkt 3. september 1994, en hætt var við úreldinguna 31. mars 1995.
Stefni bátsins var breytt 1998.
Breytt hjá Skipalyftunni í Vestmannaeyjum frá jan- mars 2003 í veiðiskip á þorski til áframeldis.
Lá í Reykjavíkurhöfn frá 11. nóv. 2004 til 18. des. 2009 að hann var dreginn af hafnsögubátnum Leyni upp á Akranes. Þann tíma sem báturinn lá í Reykjavíkurhöfn, var hann ýmist skráður Eykon RE 19, Adolf RE 182, eða Adolf RE 19, þó alltaf stæði á bátnum sama skráningin Eykon RE 19. Var afskráður sem fiskiskip 24. ágúst 2005, en skráður aftur fyrir nokkrum árum.
Nöfn: Seley SU 10, Jón Þórðarson BA 80, Guðmundur Kristján BA 80, Jón Ágúst GK 60, Jón Ágúst GK 360, Fönix KE 111, Bergvík VE 505, Krossanes SU 5, Stakkur VE 650, Surtsey VE 123, Adolf Sigurjónsson VE 182, Kristjana GK 818, aftur Adolf Sigurjónsson VE 182, Eykon ÍS 177, Eykon RE 19, Adolf RE 182, Adolf RE 19, Arnfríður Sigurðardóttir RE 14 og núverandi nafn er: Fönix ST 177.
 |
|
177. Jón Ágúst GK 60, í Dráttarbraut Keflavíkur, en þarna er búið að rífa af honum allt sem skemmdist í brunanum og síðan var hann endurbyggður í Dráttarbrautinni © mynd Emil Páll, á árunum 1978 - 1980
 |
177. Fönix KE 111, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 1986 |
|
| |
|
|