09.08.2014 19:31
Stíganda VE 77, lagt í nóvember
Stíganda VE-77 verður lagt 10. nóvember 2014 vegna hagræðingar í útgerðarrekstri Vinnslustöðvarinnar. Áhöfninni, 12 manns, var af því tilefni sagt upp störfum í fyrradag.
Þessi ákvörðun var birt áhöfn Stíganda og tekið fram um leið að sjómennirnir njóti forgangs þegar ráðið verður í önnur störf sem kunna að losna hjá félaginu.
Þá var þess og getið að Stígandi kunni að verða gerður út að nýju til humarveiða í apríl 2015. Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum en möguleikinn er fyrir hendi eins og staðan er nú.
Frá þessu er sagt á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar:

1664. Stígandi VE 77 við Ægisgarð í Reykjavík © mynd Faxagengið, 9. mars 2013
