29.06.2014 21:00
Kristbjörg VE 71 og Fram ÍS 25: Síðustu ferðinni frestað
Upp út kvöldmatnum í kvöld stóð til að Kristbjörg VE 71 færi frá Njarðvík með Fram ÍS 25 í eftirdragi, í síðustu ferð beggja skipanna, en förinni var heitið til Ghent í Belgíu, þar sem höggva á bæði skipin upp, eða eins og þetta er kallað í dag, ,,að fara í pottinn". Ástæðan fyrir frestuninni var slæm veðurspá.
Að sögn þeirra sem staðið hafa í því að kaupa skip fyrir þá í Belgíu, er þegar þessi skip verða farinn, komin 10 skip sem farið hafa á þeirra vegum héðan, þangað. Fyrir hálfum mánuði fóru Kristrún RE 477 með Portland VE 97, í samskonar ferð og á sama stað.
Hálfum mánuði eftir þessa ferð fara þeir Jón Gunnlaugs ÁR 444, sem er í Sandgerði og Sæmundur GK 4, sem er í Njarðvík og mun Jón Gunnlaugs draga hinn. Jafnvel hefur verið rætt um að taka þriðja skipið sem nú er í Hafnarfjarðarhöfn, með í ferðina.
Eins og sést á myndunum af Kristbjörgu, þá hafa skipin tekið með sé mikið af brotajárni og fylltu þeir skipið í Eyjum og Þorlákshöfn og meðal annars er í lestunum gamlir toghlerar. Ekkert slíkt er í Fram ÍS og því getur farið svo að bátarnir komi við í Eyjum og taki eitthvað meira af brotajárni og færi það þá í Fram.

84. Kristbjörg VE 71, í Njarðvíkurhöfn, í kvöld

971. Fram ÍS 25, í Njarðvíkurhöfn, í kvöld
© myndir Emil Páll, 29. júní 2014

Skrifað af Emil Páli