27.06.2014 20:05

Þrír bátar Nesfisks, nánast samtímis hjá Sólplasti - komu allir með Gullvagninum

Eins og lesendur síðunnar hafa örugglega tekið eftir hafa þrír af fjórum plastbátum Nesfisks, verið nánast samtímis hjá Sólplasti í Sandgerði, þar sem sett hafa verið í þá astik fyrir makrílveiðarnar og tækifærið notað til sitthvað annars, í viðkomandi bátum.

Fyrstur kom Bergur Vigfús GK 43, þann 12. júní sl. og var hann raunar tilbúinn til sjósetningar að nýju í síðustu viku, en vegna vandkvæða með að fá Gullvagninn þá dróst það þangað til í fyrradag, en  þann sama dag kom einmitt Gottieb GK 39 og í gær bættist Dóri GK 42 við.

Vegna stærðar á bátunum er ekki hægt að hífa þá upp á vagn og draga að Sólplasti og því er hverjum fyrir sig siglt frá Sandgerði til Njarðvíkur, þar sem Gullvagninn hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur flytur bátinn á land og eftir að hann hefur verið þrifinn, er honum ekið í lögreglufylgd nánast með sjávarsíðunni í gegn um Keflavík, þar til komið er út í Gróf þá er farið í átt að Helguvík og síðan yfir á Garðveginn og Sandgerðisveginn og þaðan er bein leið til Sandgerðis. Þessi leið er nýleg í þessum flutningum en mikið betri en sú sem áður var notuð, sem var að fara upp Grænásbrekkuna í Njarðvík og síðan eftir Reykjanesbrautinni út á Sandgerðisveg. Sú leið er mikið umferðarþyngri en sú leið sem nú er farinn sem ekki var góð fyrir svona stóra báta. - Þegar báturinn er sjósettur að nýju er ekki farin sama leið til baka heldur beint niður að Sandgerðishöfn og þaðan fer báturinn á flot.

Talandi um bátanna þrjá þá eru þeir mislangir, lengstur er Dóri, en sá er líka nýjastur í flota Nesfisks. Raunar fór hann þessa sömu leið fyrir ári síðan er hann hét Keilir II AK 4 og hjá Sólplasti var þá byggt yfir hann og fór hann úr húsi sem Óli G. HF 22 og í vetur keypti Nesfiskur bátinn og fékk hann  þá nafnið Dóri.

Flestir eru sammála um að Bergur Vigfús sé gangbestur og í alla staði skemmtilegastur og fallegastur af þeim öllum. Dóri er þó langstærstur þeirra þriggja, bæði lengstur og eins breiðastur.

Það furðulegasta við þessa flutninga er að það voru skipstjóri og stýrimaður Bergs Vigfúss sem sáu um að koma öllum bátunum í Gullvagninn og fylgjast með breytingunum á þeim. Já öllum bátunum þremur. Skipstjórinn er Jónas Árnason og stýrimaðurinn er Sigurður Ármannsson. Sem dæmi þá þurfu þeir að hafa hraðann á þegar búið var að sjósetja Berg Vigfús, í Sandgerði og koma honum að bryggju, sigldu þeir Dóra frá Sandgerði og yfir til Keflavíkur og morguninn eftir til Njarðvíkur.

Svona í endirinn ætla ég að flytja smá pílu á lögregluna sem sáu um lögreglufyldina. Þegar Bergur Vigfús var fluttur frá Njarðvík og úteftir var séð til þess að umferð á móti kæmi aldrei inn á akstursleið Gullvagnsins. Þegar Gottieb var fluttur þá ók lögreglubíllinn svo nálægt dráttarvélinni sem dregur Gullvagninn að halda mætti að liltu munaði að keyrt yrði aftan á lögguna. Sá sem sá um það getði ekkert í því að stöðva umferð sem kom á móti, sem var auðvitað stór hættulegt þar sem verið var að flytja breiðan bát. Þegar Dóri var fluttur stýrði hann umferðinni á sama báta og þegar Bergur Vigfús var fluttur, enda var á bátur að mig minni 4.20 á breidd og því dugði ekki önnur akgreinin. - Eins og sést hefur á myndum þeim sem ég hef birt af öllum þremur flutningunum er það sem ég skrifa um lögreglufylgdina, eins og ég sá það, því öllum flutningunum fylgdi ég eftir.

Hér fyrir neðan koma myndir af þeim fimm mönnum sem mest komu við flutninga og lagfræðingu á bátunum, svo og aðrar myndir sem fylgja þessu.


         Þeir sem sigldu bátunum í Gullvagninn og fylgdust með því sem gert var við þá, f.v. Sigurður Ármansson stýrimaður og Jónas Árnason skipstjóri


            Slippararnir sem sáu um Gullvagninn f.v. Steini og Gúsi, en sá síðarnefndi sá einnig um þrif á bátunum. Aftan við Steina sést í Hörð Óskarsson sem kom þarna við þegar ég tók myndina


            Kristján Nielsen, hjá Sólplasti sem sá auðvitað um plastvinnuna


            F.v. 2604. Dóri GK 42 og 2622. Gottieb GK 39, við Sólplast í Sandgerði í gær


               Þessa mynd tók ég í gær, eftir að Bergur Vigfús, sem var á myndinni sem ég birti í gærmorgun, var farinn og Dóri kominn í staðinn. F.v. 2604. Dóri GK 42, Gottieb GK 39, 2298. Anna María ÁR 109 (sem fór í dag eins og sést á næstu færslu, en í hann var líka sett astik og sitthvað annað lagað) og 6298. Siglunes SH 22

                © Myndir og texti: Emil Páll, 26. og 27. júní 2014